Prentun og þjónusta

Skriða tekur að sér prentun og skönnun, gerð bókverka og fleira. Sjá frekari upplýsingar fyrir neðan.

 

RISOPRENTUN
Skriða tekur að sér að Risoprenta fyrir aðra en gott er að hafa fyrirvara á verkefnum, þar sem yfirleitt eru mörg járn eru í eldinum á verkstæðinu. Innifalið er sending hvert á land sem er. 

Um Riso:
Í Risoprentun er aðeins einn litur prentaður í einu. Sérstakur stensill eða svokallaður master er útbúinn fyrir hvern lit sem síðan prentast á pappírinn. Hægt er að leika sér með fyllingu litarins og þannig fá mismunandi tóna úr sama litnum. Einnig er hægt að láta liti blandast með því að leggja flöt í einum lit ofan á annan litaflöt. Að sama skapi er hægt að nota litaðan pappír og fá þannig blöndun. Hægt er að prenta upp í A3 stærð.
Riso er einstaklega umhverfisvæn prentaðferð en litirnir eru unnir úr olíu úr hrísgrjónahýði og stensillinn eða masterinn er unnir úr bananatrefjum og því eru þessi efni ekki skaðleg umhverfinu. Hafa skal þó í huga að vegna þessa þá geta litirnir verið lengur að þorna, þ.e. ef mikill þéttleiki er í litnum.

Litir í boði hjá Skriðu:
-Skærrauður (Bright Red)
-Gulur (Yellow)
-Blár (Blue)
-Fluro appelsínugulur (Fluorescent Orange) -Lýsir í myrkri með uv-ljósi.
-Svartur (Black)

Hafið samband í tölvupósti á skridabokautgafa@gmail.com til þess að fá upplýsingar um skil fyrir prentun, pappírsmöguleika og verðtilboð.

--------------------------------------------------------------------------------------

ÖNNUR ÞJÓNUSTA

Í Skriðu er öflugur skanni sem getur skannað upp í allt að A3+. Einnig er boðið upp á prentun á góðan pappír og karton.

Skriða tekur einnig að sér gerð bókverka og bóka í takmörkuðu upplagi, t.d. fyrir listamenn eða höfunda sem vilja gefa út í fáum eintökum. Nauðsynlegt er að hafa góðan fyrirvara.

Hafið samband í tölvupósti á skridabokautgafa@gmail.com til þess að fá upplýsingar um möguleika og verðtilboð.