Terms of service

Reynt er að afgreiða allar pantanir eins fljótt og auðið er, en þar sem nýjar bækur eru handsaumaðar og gerðar eftir eftirspurn, geta einstaka tafir orðið á að vara sé send frá Skriðu, en þá verður kaupandi látinn vita.

Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% eða 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. 

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn sölureikningi sem sýnir með hvenær varan var keypt. Hægt er að fá endurgreiðslu ef skilin eru innan 14 daga gegn framvísun kvittunar. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu umbúðum þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Ef þú hefur fengið vöru frá Skriðu er hægt að skila og skipta í aðra vöru eða fá inneignarnótu, ef varan hefur verið keypt beint af Skriðu en ekki í gegnum þriðja aðila, s.s. aðrar bókabúðir. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Skriða allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðir ef þess er óskað. 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Skriða (101089-3559)
/Birta Ósmann Þórhallsdóttir
Eyrargata,
450 Patreksfjörður
VSK#: 58110
skridabokautgafa@gmail.com
Sími: 865-4098