Prentþjónusta/ printing service
PRENTÞJÓNUSTA/PRINTING SERVICE (english below)
Skriða tekur að sér prentun og skönnun, gerð bókverka og fleira.
RISOPRENTUN
Skriða tekur að sér að Risoprenta fyrir aðra en gott er að hafa fyrirvara á verkefnum, þar sem yfirleitt eru mörg járn eru í eldinum á verkstæðinu. Innifalið er sending hvert á land sem er.
Um Riso:
Í Risoprentun er aðeins einn litur prentaður í einu. Sérstakur stensill eða svokallaður master er útbúinn fyrir hvern lit sem síðan prentast á pappírinn. Hægt er að leika sér með fyllingu litarins og þannig fá mismunandi tóna úr sama litnum. Einnig er hægt að láta liti blandast með því að leggja flöt í einum lit ofan á annan litaflöt. Að sama skapi er hægt að nota litaðan pappír og fá þannig blöndun. Hægt er að prenta upp í A3 stærð.
Riso er einstaklega umhverfisvæn prentaðferð en litirnir eru unnir úr olíu úr hrísgrjónahýði og stensillinn eða masterinn er unninn úr bananatrefjum og því eru þessi efni ekki skaðleg umhverfinu. Hafa skal þó í huga að vegna þessa þá geta litirnir verið lengur að þorna, þ.e. ef mikill þéttleiki er í litnum.
Litir í boði hjá Skriðu:
-Skærrauður (Bright Red)
-Gulur (Yellow)
-Blár (Blue)
-Fluro appelsínugulur (Fluorescent Orange) -Lýsir í myrkri með uv-ljósi.
-Svartur (Black)
Hafið samband í tölvupósti á skridabokautgafa@gmail.com til þess að fá upplýsingar um skil fyrir prentun, pappírsmöguleika og verðtilboð.
ÖNNUR ÞJÓNUSTA
Í Skriðu er öflugur skanni sem getur skannað upp í allt að A3+. Einnig er boðið upp á prentun á góðan pappír og karton.
Skriða tekur einnig að sér gerð bókverka og bóka í takmörkuðu upplagi, t.d. fyrir listamenn eða höfunda sem vilja gefa út í fáum eintökum. Nauðsynlegt er að hafa góðan fyrirvara.
Hafið samband í tölvupósti á skridabokautgafa@gmail.com til þess að fá upplýsingar um möguleika og verðtilboð.
--------------------------------------------------------------------------------------
PRINTING SERVICE
Skriða offers printing and scanning services, bookmaking, and more.
RISOGRAPH PRINTING
Skriða offers Risograph printing services. Recommended is to get in touch well in advance, as the studio usually has several projects in progress. Shipping anywhere in Iceland is included.
About Risograph printing:
With Risograph printing, one color is printed at a time. A special stencil, known as a master, is created for each color, which is then printed onto the paper.
It is possible to experiment with the density of the ink to create different tones from the same color. Colors can also be blended by printing one color on top of another. Colored paper can also be used to create additional color combinations. Skriða can print up to A3 size.
Risograph is a very environmentally friendly printing method. The inks are made from rice bran oil, while the stencils, or masters, are made from banana fibres, making these materials none harmful to the environment. Please note however, that due to the nature of the inks, colors may take longer to dry, particularly when using high ink densities.
Colors available at Skriða:
-Bright Red
-Yellow
-Blue
-Fluorescent Orange (glows under UV light)
-Black
Please contact skridabokautgafa@gmail.com for information about how to prepare your files for printing, paper options, and prices.
Other services:
Skriða has a high-quality scanner capable of scanning materials up to A3+ size. We also offer printing on high-quality paper and card stock.
Skriða also offers bookmaking for small-edition book projects, for example for artists or authors who wish to publish a limited number of copies. Please get in touch in advance.
Please contact skridabokautgafa@gmail.com for information about options and prices.