Residensía/Residency

Residensía / Residency (english below)

Skriða í samstarfi við Öldu Hrannardóttur bókavörð, býður upp á residensíu á Patreksfirði.

Residensían samanstendur af 90 fm. íbúð og möguleika á auka aðstöðu til listsköpunar á prentverkstæði Skriðu.

Íbúðin er 90 fm, með tveimur svefnherbergjum (annað með hjónarúmi, hitt með tveimur einstaklingsrúmum), rúmgóðri stofu með dyrum út á skjólgóðan pall, borðstofu/vinnuherbergi með skrifborðsstól, baðherbergi með sturtu og fullbúnu eldhúsi. Íbúðin hentar vel þeim sem vilja t.d. sinna skriftum og þýðingum. Wif-fi er til staðar. Íbúðin er í göngufæri frá allri helstu þjónustu, s.s. sundlaug, verslun og prentverkstæði Skriðu. 
Þar sem íbúðin er nokkuð stór er hún kjörin fyrir vini, pör eða kollega sem vilja vinna saman að verkefni en auðvitað einnig fyrir einstakling.

Prentverkstæði Skriðu er staðsett í svokallaðri Verbúð við Eyrargötu, nálægt höfninni á Patreksfirði en húsið hýsir ýmsa listastarfsemi. Í Skriðu er góð aðstaða til listsköpunar, s.s. myndlistarvinnu, prentunar og bókagerðar. Á neðri hæð eru tvö samliggjandi rými, annars vegar prent -og vinnurými sem einnig er lítil búð og svo innra rýmið sem er vinnuaðstaða. Þar er einnig góð kaffistofa með kaffivél, hitakatli, ísskáp, brauðrist og sófa til þess að halla sér. Á efri hæð er auka skrifborðsaðstaða og jógarými. 
     Ætlast er til að umsækjandi vinni á eigin vegum að sinni listsköpun, þó að sjálfsögðu megi ráðfæra sig og fá aðstoð frá umsjónarmanni Skriðu. Vinsamlegast athugið að afnotin miðast við það að deila rýminu með Birtu Ósmann, umsjónarmanni Skriðu og hundinum Vísu. Einnig eru stundum viðburðir í Skriðu sem taka þarf tillit til.

Kostnaður:
Leiga fyrir vikuna í íbúðinni er 50.000 kr.
að auki má bæta við afnotum að aðstöðu í Skriðu fyrir 15.000 kr. á viku.

Vinsamlegast athugið að umsækjendur þurfa sjálfir að koma sér á staðinn á eigin kostnað.


Umsóknir sendist á skridabokautgafa@gmail.com

 


DAGSETNINGAR:
2026:
12-18. okt.
19.-25. okt.
26. okt. -1. nóv.
2.-8. nóv.
9.-15. nóv.
16.-22. nóv.
23. -29. nóv.
30. nóv. - 6. des.

2027:
4. -10. jan.
11. -17. jan.
18. - 24. jan.
25. -31. jan.
1. -7. feb.
8. -14. feb.
15. -21. feb. 
22. -28. feb.
1. -7. mars
8. -14. mars
19. -25. apríl
26. apríl -2. maí
3. -9. maí


Myndir af íbúð:


Myndir af prentverkstæði Skriðu:

----------------------------------------------------------------------------------

ENGLISH:

Skriða, in collaboration with librarian Alda Hrannardóttir, offers an artist residency in Patreksfjörður.

The residency consists of a 90 m² apartment, with the option of additional workspace for artistic practice at Skriða’s printing workshop.

The apartment is 90 m² and has two bedrooms (one with a double bed and the other one with two single beds), a spacious living room with doors opening onto a patio, a dining room/workroom with a desk and office chair, a bathroom with a shower, and a fully equipped kitchen. The apartment is particularly well suited to those wishing to focus on writing, translation, or similar work. There is a wi-fi in the apartment.
     The apartment is within walking distance of the main services, the swimming pool, grocery store, and Skriða’s printmaking studio. 
As the apartment is quite spacious, it is well suited to friends, couples og colleagues who would like to work together on a project, and of course as well as to individuals.

Skriða’s printing workshop is located in a building known as Verbúðin, on Eyrargata, near the harbour in Patreksfjörður. The building hosts various art studios. 
Skriða offers good facilities for artistic practise, including visual art, printmaking and bookbinding/bookmaking. On the ground floor there are two adjoining spaces: one is a printmaking and work area that also is a small shop, while the inner space provides additional workspace and a small kitchen area equipped with a coffee machine, kettle, refrigerator, toaster and a sofa for relaxing. Upstairs, there is additional desk space and a space for yoga practise.

Residents are expected to work independently on their artistic practice, although they are of course welcome to consult with and receive assistance from Skriðaðs printing workshop manager.

Please note that use of the studio is shared with Birta Ósmann, Skriða’s studio manager, and her dog Vísa. There are also occasional events at Skriða which residents will need to take into consideration.

Cost:
The weekly rent for the apartment is ISK 50.000 kr.
Additional access to Skriða's printing workshop is ISK 15.000 kr. per week.

Please note that applicants are responsible for arranging and paying for their own travel to Patreksfjörður.


Application should be sent to skridabokautgafa@gmail.com

 

DATES:
2026:
12-18. oct.
19.-25. oct
26. oct. -1. nov.
2.-8. nov.
9.-15. nov.
16.-22. nov. 
23. -29. nov.
30. nov. - 6. dec.

2027:
4. -10. jan 
11. -17. jan
18. - 24. jan
25. -31. jan
1. -7. feb
8. -14. feb 
15. -21. feb
22. -28. feb 
1. -7. march
8. -14. march
19. -25. april
26. april -2. may
3. -9. may

Photos from the apartment:





Photos from Skriða's printing workshop: