Skip to product information
1 of 1

Skriða

Brot úr spegilflísum eftir Þórhildi Ólafsdóttur

Brot úr spegilflísum eftir Þórhildi Ólafsdóttur

Almennt verð 2.990 kr
Almennt verð Tilboðsverð 2.990 kr
Tilboð Uppselt
vsk. innifalið Shipping calculated at checkout.

Ljóðabók eftir Þórhildi Ólafsdóttur.
109 bls. 
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir er fædd árið 1953. Hún hefur einnig gefið út Skáldsöguna Efndir (Skriða), þýtt úr frönsku bækurnar Atburðurinn og Kona eftir Annie Ernaux (Ugla) og þýtt úr tyrknesku bókina Memed mjói eftir Yasar Kemal (Mál og menning).


VIÐ LAMBABRÍK

á fjöru heilsa
sléttmjúkir steinar
klappaðar klappir

frá öldum til alda
sleikti sjórinn landið
liprum kattartungum

Lambabrík

hér nörtuðu lömbin
lambagrös
stóðu hátt á snös
sneru snöggt upp á sig 

leyndarmál Lambabríkur
syllan mót suðvestri
er þarna enn

drottning fjörukletta
bríkin breiða
finnur fótatak þitt

á nefstórum nibbum
Lambabríkur
mætir þú sjálfri þér

eins og þú varst
og ert kannski enn
eftir allt saman

Skoða betur