Skriða
Með vindinum liggur leiðin heim eftir Auði Þórhallsdóttur
Með vindinum liggur leiðin heim eftir Auði Þórhallsdóttur
Couldn't load pickup availability
Falleg og hugljúf saga eftir Auði Þórhallsdóttur, sem einnig myndlýsti.
Töfrar lífsins gerast í lítilli vík í norðri þegar andarungar skríða úr eggjum. Andamamma brýnir fyrir börnum sínum hversu mikilvægt sé að halda hópinn en einn þeirra gleymir sér yfir undrum veraldar og týnist. Gamall lífsreyndur hundur finnur ungann og með þeim tekst einstök vinátta. Þrátt fyrir að unginn finni öryggi og ást hjá hundinum og fjölskyldu hans þá býr innra með honum þráin eftir frelsi fuglanna.
Auður Þórhallsdóttir er fædd árið 1974. Hún hefur einnig gefið út tvær aðrar bækur um miðbæjarrottuna, barnabókina Með vindinum liggur leiðin heim, barnabókina Sumar með Salla og tvímála barnabókina Tönnin hans Luca/El diente de Luca ásamt Pilar Concheiro.
Share
